Skoða bók
Vélmennaárásin : bernskubrek Ævars vísindamanns
Bernskubrek Ævars vísindamanns
2
03:27 klst.
2016
VARÚÐ! Í ÞESSARI BÓK ERU BRJÁLUÐ VÉLMENNI! Þekkir þú einhvern sem vill helst hanga í tölvunni allan daginn? Þannig var Ævar vísindamaður þegar hann var ellefu ára. Það gekk meira að segja svo langt að hann skráði sig í sumarskóla til að þurfa ekki að vera úti í sólinni. En það reyndist vera stórhættuleg ákvörðun. Þetta var nefnilega enginn venjulegur skóli... Fyrsta sagan um bernskubrek Ævars vísindamanns, Risaeðlur í Reykjavík, sló rækilega í gegn og hér halda ævintýrin áfram. Með bókinni efnir Ævar Þór Benediktsson loforð við þúsundir barna um allt land sem tóku þátt í lestrarátaki hans og lásu samtals fimmtíu og fjögur þúsund bækur. Gerið svo vel, lestrarhestar, hér er ein bók í viðbót!
Barnabækur Fantasíur Vélmenni Ævar vísindamaður Íslenskar barna- og unglingabækur Íslenskar bókmenntir