Skoða bók

Á ævintýraleiðum : Ævisaga og örlög annars heims

Guðmundur Kristinsson  

Guðmundur S. Brynjólfsson  

09:14 klst.  

2016  

Guðmundur Kristinsson, höfundur metsölubókarinnar Sumarlandið, hefur nú ritað ævisögu sína. Segir frá æskuárum sínum í upphafi byggðar á Selfossi og fornum búskaparháttum í Litlu-Sandvík. Eftir stúdentspróf 1951 vann hann á sveitabýlum í Danmörku og Þýzkalandi í 1og hálft ár og fór 2ja mánaða ferð á reiðhjóli um tíu Evrópulönd. Réri 4 vertíðir í Þorlákshöfn og starfaði í útibúi Landsbankans á Selfossi í 36 ár. Þá ritaði hann um margvísleg efni í héraðsblöðin og samdi 9 bækur og gaf 7 þeirra út sjálfur. Síðari hlutinn eru sýnir við dánarbeði og útfarir og viðtöl á miðilsfundum við látinn son, Ingvar, framliðna ættingja og vini og 3 brezka flugmenn frá Kaldaðarnesi sem segja frá andláti sínu og hinum nýju heimkynnum og einn, sem fórst í flugslysi fyrir 72 árum.  

20. öldin Dulræn fyrirbæri Framhaldslíf Miðlar Sálarrannsóknir Ævisögur og endurminningar Íslendingar