Skoða bók

8 vikna blóðsykurkúrinn

Mosley, Michael  

Karl Emil Gunnarsson  

Helga Elínborg Jónsdóttir  

06:49 klst.  

2017  

Þessi bók er ekki aðeins fyrir fólk sem greinst hefur með háan blóðsykur, heldur fyrir alla sem hafa átt í vandræðum með aukakílóin og vilja bæta heilsu sína og draga út sjúkdómahættu – án lyfja. Mörg okkar eru með of háan blóðsykur vegna óhóflegrar neyslu sykurs og auðmeltra kolvetna. Það leiðir ekki aðeins til fitusöfnunar heldur eykur mjög hættu á sykursýki 2, hjarta- og æðasjúkdómum, krabbameini og vitglöpum. En það er hægt að snúa þróuninni við með lífstílsbreytingum og réttu mataræði. Hér útskýrir Michael Mosley hvers vegna fólk safnar á sig kviðfitu og hvernig má losna við hana – hratt og örugglega – og lækka þannig blóðsykurgildin. Hann hrekur með vísindarökum fullyrðingar um að hægt að jafnt þyngdartap sé best og að þeir sem léttast hratt muni brátt þyngjast að nýju. Í bókinni er jafnframt fjöldi uppskrifta að gómsætum en hitaeininga- og kolvetnarýrum réttum, matseðlar og ráðleggingar um mataræði, hreyfingu og lífsvenjur.  

Blóðsykur Heilsa Heilsuefling Heilsufar Mataruppskriftir Mataræði Sjálfsrækt Sjúkdómar Sykursýki Uppskriftir