Skoða bók
Siðfræðikver
01:50 klst.
2016
Í Siðfræðikveri færir Vilhjálmur Árnason rök fyrir því að siðferðilegar rökræður séu skynsamleg leið til þess að jafna siðferðilegan ágreining. Ennfremur sýnir hann fram á að hægt sé að rökstyðja siðferðilegar ákvarðanir með tilvísun í verðmæti og siðalögmál sem eru hafin yfir einstaklingsbundinn smekk, án þess að hafna í siðferðilegri lögmálshyggju. Siðfræðikver kynnir fyrir lesendum hvernig þessi tvö fyrirbæri, rökræður og ákvarðanir, eru höfuðatriði í siðferðilegu lífi og að þau eru samofin. Bókin er byggð á fyrsta kafla Siðfræði lífs og dauða. Henry Alexander Henrysson sá um útgáfuna og ritar formála.