Skoða bók
Atburðurinn
Birgitta Elín Hassell Marta Hlín Magnadóttir
7
03:52 klst.
2015
Eftir að hafa lotið í lægra haldi í átökum við hættulega veru lendir Margrét í Hæðabyggð, blokkinni sem í dag gengur undir nafninu Rústirnar. Á meðan hún leitar leiða til að komast aftur heim upplifir hún af eigin raun hvernig illskan býr um sig í fjölbýlinu og hefur áhrif á íbúa þess. Smám saman fer hún að skilja hvers vegna fullorðna fólkið talar alltaf um atburðinn; það sem gerðist í rústunum í gamla daga, í hálfum hljóðum. Atburðurinn er sjöunda sjálfstæða bókin um krakkana í Rökkurhæðum og með henni lýkur bókaflokknum í þessari mynd. En sögunni er ekki lokið. Hvaðan kemur þessi illska sem virðist hafa búið varanlega um sig í hæðinni? Atvikin sem lesendur hafa fylgst með benda til þess að illskan sé að magnast en enginn virðist átta sig á samhenginu. Mun hið illa sigra eða munu íbúar Rökkurhæða átta sig á hættunni áður en það er orðið of seint?
Barna- og unglingabækur Draugasögur Skáldsögur Spennusögur Íslenskar bókmenntir