Skoða bók
Smákon
1
00:19 klst.
2015
Litli eldhúsálfurinn, Smákon, kann best við sig uppi á borðum og inni í skápum þar sem stutt er í mat. Smákoni þykir nefnilega ekki leiðinlegt að borða. Dagar hans líða áfram hver öðrum líkir. Hann felur eina og eina teskeið, endurraðar sykurmolum og prófar að leggja sig í bollum og skálum. Hann kann vel við þetta einfalda og rólega líf, þó stundum langi hann í tilbreytingu. Dag einn er friðurinn úti. Músin Kústur flytur inn í eldhúsið hans með öllu sínu masi og spurningaflóði. Hvernig skildi Smákoni takast að aðlagast nýja sambýlingnum og vill hann í raun losna við hann og verða einn aftur?
Barna- og unglingabók Barnabækur Börn Skáldsögur Álfar Íslenskar barna- og unglingabækur