Skoða bók

Litla bakaríið við Strandgötu

Colgan, Jenny  

Ingunn Snædal  

Alda Arnardóttir  

Litla bakaríið við Strandgötu  

14:18 klst.  

2017  

Ástarsaga með uppskriftum! Líf Pollyar Waterford er heldur dapurlegt: Fyrirtækið er gjaldþrota, fína íbúðin horfin undir hamarinn og kærastinn fluttur heim til mömmu. Sárblönk neyðist Polly til að flytja í hrörlegt hús í litlu sjávarþorpi í Cornwall þar sem hún þekkir ekki nokkurn mann. Til að gleyma sorgum sínum hellir hún sér út í það sem veitir henni mesta ánægju í lífinu: að baka brauð. Fljótlega rennur þorpið á lyktina og fyrr en varir hefur Polly tekið við rekstri bakarísins á staðnum. Hér kynnist hún litríkum þorpsbúunum: sjómanninum Tarnie og skipsfélögum hans, myndarlega bandaríska býflugnabóndanum Huckle og ríka, skrautlega vini hans Reuben, skapilla bakaríseigandanum Gill Manse og hinum óframfærna Jayden, svo ekki sé minnst á Kerensu, kjaftforu og hressu vinkonuna úr höfuðborginni. Hugljúf og heillandi saga um konu sem þorir að hefja nýtt líf.  

Bakstur Breskar bókmenntir Sambönd Skoskar bókmenntir Skáldsögur Ástarsögur Þýðingar úr ensku