Skoða bók
og aftur deyr hún
03:18 klst.
2017
"Fyrir sjö vikum stóð Þórkatla á sama stað. Horfði ofan í opna jörð og tók við faðmlögum. Heyrði huggunarorð án þess að hlusta og þakkaði fólki fyrir án þess að meina það. Horfði ofan í opna jörð á kistulok sem huldi það líf sem hún þekkti." Alda er látin. Hún virðist hafa framið sjálfsmorð en fólkið sem stendur henni næst á erfitt með að trúa því. Sagan fléttar saman líf nokkurra einstaklinga sem allir tengjast Öldu og hafa ólíka sýn á líf hennar og dauða.