Skoða bók

Afætur

Adler-Olsen, Jussi  

Jón St. Kristjánsson  

Hjálmar Hjálmarsson  

Carl Mørck og Deild Q  

16:40 klst.  

2017  

Yfirstjórn dönsku lögreglunnar vill leggja Deild Q niður, finnst hún hafa náð litlum árangri við að leysa gömul sakamál. Carl Mørck og félagar berjast gegn þeirri ákvörðun og reyna um leið að komast til botns í nýjum málum sem eiga rætur í fortíðinni. Roskin kona finnst myrt í Kaupmannahöfn og glæpurinn minnir á gamalt óupplýst morðmál. Ökuníðingur eltir ungar konur og ekur þær niður. Hvaða leyndu þræðir liggja á milli þessara mála – og hvernig tengjast þau nokkrum ungum, sjálfhverfum konum sem lifa á bótum og leita stöðugt nýrra leiða til að ná meiri peningum út úr kerfinu? Jussi Adler-Olsen er óumdeildur konungur danskra glæpasagna og hefur eignast fjölda aðdáenda á Íslandi og víða um heim. Afætur er sjöunda bókin um Carl Mørck og Deild Q.  

Danskar bókmenntir Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Þýðingar úr dönsku