Skoða bók

Fjallið

D'Andrea, Luca  

Halla Kjartansdóttir  

Sigurður H. Pálsson  

14:06 klst.  

2017  

Árið 1985 voru þrjú ungmenni myrt í Dólómíta-fjöllunum. Líkin fundust illa útleikin en málið var aldrei upplýst. Þrjátíu árum seinna heyrir bandaríski kvikmyndagerðarmaðurinn Jeremiah Salinger af morðunum, en hann er þá nýfluttur til þorpsins þar sem ungmennin bjuggu. Hann fer að grafast fyrir um þessa atburði, en mætir þá mikilli andstöðu íbúanna - og eiginkonu sinnar. Að lokum verður hann algjörlega heltekinn af því að komast að sannleikanum í málinu – með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Vönduð spennusaga sem engin leið er að leggja frá sér. Hver eru þessi leyndarmál sem ekki þola dagsljósið? Og hvaða illska býr í fjöllunum?  

Skáldsögur Spennusögur Ítalskar bókmenntir Þýðingar úr ítölsku