Skoða bók

Martröð með myglusvepp

Steinn Kárason  

Guðlaug Gísladóttir   Hanna María Karlsdóttir  

03:26 klst.  

2017  

Í bókinni eru átta reynslusögur fólks sem glímt hefur við eitrun af völdum myglusveppa, hvernig fólkið brást við og leiðir þess til að sigrast á vandanum. Greint er frá einkennum fólks af völdum myglusveppa, hugsanlegum bataleiðum varðandi fæðu og lífshætti og hvað beri að varast. Drepið er á endurskoðun laga og reglna og upplýsinga leitað hjá sérfræðingum í byggingargeiranum og myglusveppafræðingi. Um þrjátíu ljósmyndir eru í bókinni, þær sýna húðútbrot á fólki, raka- og mygluskemmdir í híbýlum og viðgerðir vegna tjóns. Veikindi og heilsutjón af völdum myglusveppa eru samfélagslegt böl sem nauðsynlegt er að koma í veg fyrir. Fjárhagslegt tjón er verulegt. Fræðsla um orsakir og afleiðingar af völdum myglusveppa er nauðsyn. Þar til bærir aðilar þurfa að sýna ábyrgð. Hönnun húsa, byggingaraðferðir, ábyrgð og eftirlit með húsbyggingum er höfuðatriði til að koma í veg fyrir myglutjón, einnig viðhald og umgengni fólks í húsum og híbýlum. Löggjöf og viðurlögum í þessum efnum er ábótavant. Þekking á bataleiðum vegna myglusveppaeitrunar er takmörkuð. Læknar standa iðulega ráðþrota. Mögulegar leiðir til að ná bata geta farið eftir hverjum og einum.  

Byggingar Húsakynni Húsasótt Myglusveppir