Skoða bók

Litróf kennsluaðferðanna

Ingvar Sigurgeirsson  

Sigurður H. Pálsson  

2  

10:04 klst.  

2013  

Grundvallarrit handa íslenskum grunnskólakennurum og kennaraefnum. Í henni er m.a. fjallað um fas, framkomu og verklag kennara. Tekið er fyrir eðli og einkenni kennsluaðferða en níu aðalkaflar bókarinnar fjalla sérstaklega um: útlistunarkennslu, þulunám og þjálfunaræfingar, verklegar æfingar, umræðu og spurnaraðferðir, innlifunaraðferðir og tjáningu, þrautalausnir, leitaraðferðir, hópvinnubrögð og sjálfstæð, skapandi viðfangsefni. Í bókinni er mikið af gagnlegum ábendingum til kennara um námsefni og fræðilegt efni. Í þessari nýju útgáfu bókarinnar hefur efnið verið endurskoðað, aukið og uppfært, m.a. með hliðsjón af hinni hröðu þróun í upplýsingatækni frá fyrstu útgáfu bókarinnar. Höfundur bókarinnar, dr. Ingvar Sigurgeirsson, er prófessor við Kennaradeild Háskóla Íslands. Hann hefur víðtæka reynslu af skólastarfi og hefur rannsakað kennsluaðferðir í skólum hér á landi, leiðbeint og verið ráðgefandi um kennsluhætti, kennslutækni, námsefnis- og námskrárgerð, námsmat, skólaþróun og mat á skólastarfi.  

Grunnskólar Kennsla Kennsluaðferðir Kennslufræði Námsmat