Skoða bók
Búrið
3
09:17 klst.
2017
Agla afplánar dóm í fangelsinu á Hólmsheiði. Ekkert bíður hennar utan múranna og Sonja ástkona hennar er horfin á braut. Agla er því fljót að grípa tækifærið þegar fulltrúi erlends stórfyrirtækis biður hana um aðstoð í máli sem ekki má fara hátt. Það snýst um flókið fjármálamisferli og þar er hún á heimavelli. Með aðstoð Maríu, sjálfstætt starfandi blaðamanns, ræðst Agla til atlögu við hákarlana. Álkóngurinn Ingimar á sér einskis ills von en þegar María fer að spyrja óþægilegra spurninga bregst hann snarlega við - og það er leikur kattarins að músinni. Í kjallaranum heima hjá honum liggja hins vegar dýnamítstangir sem hann veit ekki af og bíða réttu stundarinnar... Búrið er æsispennandi lokaþáttur í þríleik Lilju Sigurðardóttur um eiturlyfjasmygl, efnahagsglæpi og eldheita ást í Reykjavík samtímans.
Efnahagsglæpir Fangelsi Fjármálamisferli Glæpasögur Konur Norrænar spennusögur Skáldsögur Spennusögur Íslenskar bókmenntir