Skoða bók
Föðurlandsstríðið mikla og María Mitrofanova : Austurvígstöðvarnar í seinni heimsstyrjöldinni
07:42 klst.
2017
Í Breiðholtinu býr María á tíræðisaldri. Á langri ævi hefur hún stiklað um stóratburði mannkynssögunnar. Í seinni heimsstyrjöldinni var hún hermaður í Rauða hernum sem í fyrstu varðist innrás Þjóðverja en endaði í Berlín. Rússar kalla þetta stríð Föðurlandsstríðið mikla. Það var hennar stríð. Bókin segir átakasögu austurvígstöðvanna í smáu og stóru. Í lok hvers kafla er stríðssagan sett í samhengi við lífshlaup Maríu Mitrofanovu og við sjáum atburðina frá hennar sjónarhóli. Athugið að bókin er ekki fyrir viðkvæma.
Austurvígstöðvarnar Hermenn Konur María Alexandrovna Mitrofanova 1925 Saga Evrópu Seinni heimsstyrjöld Sovétríkin Ævisögur