Skoða bók
Sakramentið
07:04 klst.
2017
Nemandi í Landakotsskóla verður vitni að því þegar séra Ágúst Frans skólastjóri hrapar niður úr turninum á Kristskirkju. Tveimur áratugum síðar vill drengurinn hitta nunnuna sem í aðdraganda þessa atburðar var fengin til að rannsaka framkomu skólastjórans við nemendur. Kynni hennar af Íslandi og Íslendingum umturnuðu lífi hennar og hún er enn með hugann við snjóinn í kringum svarta kirkjuna og skólahúsið hjá kirkjunni og líkið í snjónum. Sakramentið er stórbrotin skáldsaga um sekt og sakleysi, ást og eftirsjá, yfirhylmingu og leynd, vald - og okkar minnstu bræður.
Kaþólska kirkjan Landakotsskóli Nunnur Prestar Samkynhneigð Skáldsögur Íslenskar bókmenntir