Skoða bók
Stofuhiti
05:25 klst.
2017
Stofuhiti er beitt og knýjandi krufning á samtímanum þar sem rýnt er í samfélagsmiðla, sítengingu, hryðjuverk, gagnaleka og margt annað sem hefur gríðarleg áhrif á sjálfsmynd okkar, hvort sem við áttum okkur á því eða ekki. Getur verið að þrátt fyrir upphafningu einstaklingsins sé hann að þurrkast út? Að þrátt fyrir síaukið upplýsingaflæði og gagnsæi stjórnist veröldin af dulmagni? Bergur Ebbi, skáld, pistlahöfundur og uppistandari, skrifar af snerpu og eldmóði um veruleika líðandi stundar - það sem á okkur brennur: Hver erum við og hvert ætlum við?