Skoða bók

Óþægileg ást

Ferrante, Elena  

Brynja Cortes Andrésdóttir  

Ólöf Rún Skúladóttir  

Neon  

05:43 klst.  

2018  

Delia á von á móður sinni með lestinni til Rómar, en hú skilar sér ekki. Skömmu síðar finnst lík hennar í sjónum við baðstað þar sem fjölskyldan hafði stundum farið í sumarfrí. Í tengslum við jarðarförina þarf Delia að takast á hendur ferð til æskustöðvanna og um leið á vit erfiðrar bernsku með tvístraðri fjölskyldu. En ekki síst þarf hún að svara knýjandi spurningu: Hver var eiginlega móðir hennar? Í þessari fyrstu skáldsögu Elenu Ferrante fjallar hún um það efni sem einkennt hefur höfundarverk hennar síðan: flókin og margræð sambönd kvenna. Hér er mæðgnasamband í forgrunni, en einnig samskipti kynjanna, dulin og ódulin, og hvernig konur sem storka karlveldinu eiga erfitt uppdráttar. Um þetta fjallar Elena Ferrante af þeirri stílgáfu, dýpt og innsæi sem lesendur þekkja af Napólí-fjórleik hennar, og gert hefur hana að einum vinsælasta rithöfundi samtímans. Eftir þessari bók var gerð vinsæl kvikmynd.  

Fjölskyldusögur Konur Mæðgur Sambönd Skáldsögur Ást Ítalskar bókmenntir Þýðingar úr ítölsku