Skoða bók

Stormfuglar

Einar Kárason  

Einar Kárason  

02:47 klst.  

2018  

Stormfuglar er áhrifamikil saga um örvæntingarfulla baráttu íslenskra sjómanna við miskunnarlaus náttúruöfl. Á miðjum vetri heldur síðutogarinn Máfurinn á karfaveiðar vestur undir Nýfundnalandi. Um borð eru þrjátíu og tveir menn. Þeir fylla skipið í mokveiði en í þann mund sem þeir búast til heimferðar brestur á aftakaveður; sjórinn er drápskaldur og togarinn hleður á sig ísingu í nístandi frosti og ofsaroki. Klakabrynjan er að sliga drekkhlaðið skipið, hver brotsjórinn af öðrum ríður yfir - og þarna úti á reginhafi eru mönnum allar bjargir bannaðar. Frá miðunum í kring berast neyðarköll annarra skipa sem eins er ástatt um. Baráttan er upp á líf og dauða. Einar Kárason treður hér nýjar slóðir í skáldskap sínum í mergjaðri og spennuþrunginni frásögn sem byggð er á sönnum atburðum.  

Sjávarháskar Sjávarháski Sjómenn Skáldsögur Íslenskar bókmenntir