Skoða bók

Þín eigin saga. 1, Búkolla

Ævar Þór Benediktsson  

Hannes Óli Ágústsson  

Þín eigin saga  

00:43 klst.  

2018  

Þín eigin saga - Búkolla fjallar um snjalla kú, beljandi fljót, óðar skessur, brjálað naut, logandi bál, stærðarinnar bor - og ÞIG. ÞVÍ ÞÚ RÆÐUR HVAÐ GERIST! Mundu bara að ef sagan endar illa má alltaf reyna aftur - það eru meira en tíu mismunandi sögulok! Bækur Ævars Þórs Benediktssonar þar sem lesandinn ræður ferðinni hafa notið gríðarlegra vinsælda á undanförnum árum. Hér spinnur hann þráð úr bók sinni Þín eigin þjóðsaga í stuttum köflum og aðgengilegum texta sem hentar byrjendum í lestri.  

Barnabækur Ævintýri Íslenskar bókmenntir Þjóðsögur