Skoða bók

Undraherbergið

Sandrel, Julien  

Ólöf Pétursdóttir  

Margrét Kaaber   Hafþór Ragnarsson  

05:56 klst.  

2018  

"Maður lifir ekki hverja stund eins og hún væri sú hinsta, það væri svo þreytandi. Maður bara lifir." Thelma er einstæð móðir, önnum kafin og upptekin af starfi sínu. Dag einn á hún, einu sinni sem oftar, í basli með að koma tólf ára syni sínum fram úr rúminu. En tíminn æðir áfram og verkefnin þola enga bið. Grunlaus um að þetta sé dagurinn sem allt breytist, að innan skamms verði lífi þeirra umturnað á einu andartaki, halda þau sínu venjubundna striki með hverdagslegu fjasi... Svo blasir miskunnarlaus veruleikinn við. Hvað er þá til ráða? Hvað er það sem mestu máli skiptir? Örvæntingarfull móðirin finnur leið til að takast á við óbærilegar aðstæður þegar hún les það sem sonurinn hefur skrifað í litlu stílabókina sína. Undraherbergið er fyrsta bók höfundar, í senn átakanleg, fyndin og kemur á óvart.  

Fjölskyldutengsl Franskar bókmenntir Mæðgin Mæður Skáldsögur Þýðingar úr frönsku