Skoða bók

Grannmeti og átvextir

Þórarinn Eldjárn  

Hjálmar Hjálmarsson  

01:16 klst.  

2013  

Í Grannmeti og átvöxtum er að finna 99 ljóð og einn Losarabrag - ort handa börnum og barnalegu fólki. Hér skjóta upp kollinum veran Vera, Fjölleikafúsi, Eldgamla Ísafold og hjónin Sí og Æ. Einnig krókódíll og fjörulalli, fífill og óðinshani, Kjarval og Kiljan og margir fleiri. Þórarinn Eldjárn fer hér á kostum í hugmyndaflugi og leik að orðum. Bókin sló rækilega í gegn þegar hún kom fyrst út 2001. Kvæði Þórarins eru þess eðlis að þau renna ljúflega í lestri og ættu að bæta brageyrað hjá flestum. Að auki eru þau fyndin og skemmtileg og vekja ljóðaáhuga ungra lesenda. Innlestur bókarinnar er kostaður af Kiwanisklúbbnum Kötlu.  

Barnabækur Barnaljóð Fyndni Kvæði Ljóð Íslenskar bókmenntir