Skoða bók

Kona í hvarfpunkti

Maríanna Clara Lúthersdóttir   Saadawi, Nawal El  

Elísa Björg Þorsteinsdóttir  

Margrét Örnólfsdóttir  

Angústúra, áskriftarröð  

04:24 klst.  

2019  

Firdaus hefur verið dæmd til dauða fyrir morð. Hún segir sögu sína nóttina fyrir aftökuna. Egypsk, femínísk klassík sem afhjúpar undirokun kvenna í samfélögum Austurlanda nær eftir höfund sem hefur verið á dauðalistum íslamskra öfgahópa. Mergjuð skáldsaga. Með eftirmála eftir Maríönnu Clöru Lúthersdóttur. Nawal El Saadawi (f. 1931) er egypskur rithöfundur, læknir og baráttukona fyrir mannréttindum. Hún er einn áhrifamesti feminíski hugsuður arabaheimsins, hefur skrifað um stöðu kvenna í íslömskum samfélögum og gagnrýnt feðraveldið, trúarbrögð og kapítalisma fyrir kerfisbundna kúgun kvenna um allan heim. Kona í hvarfpunkti, sem byggð er á sannri sögu, fékkst upphaflega ekki útgefin í heimalandi höfundar og kom fyrst út í Líbanon árið 1975. Bókin hefur komið út á 22 tungumálum.  

Arabískar bókmenntir Egypskar bókmenntir Femínískar bókmenntir Konur Skáldsögur Þýðingar úr ensku Þýðingar úr þýsku