Skoða bók
Urðarmáni
05:38 klst.
2019
Reykjavík haustið 1918; spánska veikin breiðist hratt út í skugga Kötlugoss og annarra hörmunga og landlæknir sætir ákafri gagnrýni fyrir að verjast ekki vágestinum af nægilegri hörku. Hann vakir þó og vinnur daga og nætur, fullur sjálfstrausts og sannfærður um að hann sé að gera rétt. En þegar til hans leitar ung kona sem vill fá leyfi til ljósmóðurstarfa kemur brestur í brynju hans. Aðstæður þeirra, skoðanir og kjör eru gjörólík en samt dragast þau hvort að öðru og eiga þó enga samleið. Allt um kring herjar drepsóttin og fellir fólk á besta aldri; vini og ástvini. Urðarmáni er grípandi og áhrifamikil söguleg skáldsaga um líf, dauða og lærdóma fortíðar. Hvað myndi gerast ef viðlíka farsótt skylli á í nútímanum?
Skáldsögur Spánska veikin Sögulegar skáldsögur Íslenskar bókmenntir