Skoða bók
Eins og fólk er flest
07:57 klst.
2019
Allir vita að Maríanna býr í hvíta slotinu með heimreiðinni, þeir vita að mamma Connells er ræstingakona, en enginn hefur enn lagt saman tvo og tvo. Maríanna er einmana og utanveltu í menntaskólanum á meðan Connell er í hópi vinsælustu nemendanna. Þau verða ástfangin og eiga næstu árin í einhvers konar haltu-mér-slepptu-mér samskiptum sem þau vilja ekki vera án, en um leið er eins og sambandið sé í raun stærsta hindrunin í vegi þeirra beggja.