Skoða bók
Rosalingarnir
01:27 klst.
2019
Hei þú! Hefurðu heyrt um herra Halla? Hvernig hann gufaði bara upp einn daginn og enginn vissi hvað um hann varð? Nei, ekki það? Nú, þá skaltu glenna upp augun og lesbruna áfram því að þetta er sko saga til næsta bæjar. Sólberg7 dagdreymir um að vera rappari og gleymir að hlusta á það sem kennarinn segir, Melkorka Marsibil vill helst vera bæði syngjandi og dansandi og Artúr sér heiminn í myndum þegar bókstafirnir fara á flug. Ekkert af þessu er vinsælt í skólanum og einn morguninn eru öll þrjú send beinustu leið niður í hjálparhellinn. Þar er kominn nýr kennari - herra Halli. Hann er ólíkur öllum kennurum sem krakkarnir hafa hitt. Verst að hann hverfur skömmu síðar eins og hann hafi hreinlega gufað upp!
Barna- og unglingabækur Fyndni Spenna Íslenskar barna- og unglingabækur Íslenskar bókmenntir