Skoða bók

Uppskriftabók föður míns

Durand, Jacky  

Ólöf Pétursdóttir  

Svavar Jónatansson  

04:24 klst.  

2020  

Julien elst upp í litlu veitingahúsi við lestarstöð í franskri sveit. Töfraheimur eldhússins heillar hann frá unga aldri og hann þráir ekkert heitar en að feta í fótspor listakokksins pabba síns. En skapstirður faðirinn, sem burðast með sára reynslu úr fortíðinni, hefur aðrar og háleitari hugmyndir um framtíð sonarins. Uppskriftabók föður míns er ljúfsár og hjartnæm þroskasaga full af unaðslegri matargerð, flóknum tilfinningum og vandlega gröfnum leyndarmálum. Jacky Durand hefur um árabil fjallað um franska matargerðarlist í dagblaðinu Libération og á útvarpsstöðinni France-Culture. Þetta er fyrsta skáldsaga hans og hefur hún hlotið afar góðar viðtökur í heimalandinu.  

Feðgar Fjölskyldubönd Franskar bókmenntir Matur Skáldsögur Þýðingar úr frönsku