Skoða bók
Stormboði
2
13:10 klst.
2020
Lögreglufulltrúinn Karen Eiken Hornby er í fríi og heldur jól með fjölskyldu og vinum - og er eiginlega búin að fá nóg af þeim í bili. Satt að segja léttir henni þegar hún er óvænt kölluð til Noorö, nyrstu eyjar Doggerlands, þar sem rætur hennar liggja, til að stýra rannsókn á voveiflegu andláti aldraðs manns. Þegar annað morð er framið fer hana að gruna að málið tengist ekki bara viskíverksmiðju eyjarinnar og gömlum ættarerjum heldur einnig ættingjum hennar sjálfrar, sem kunna að hafa ýmislegt óhreint í pokahorninu. Um leið þarf hún að takast á við eigin fortíðardrauga - og hjálpa vinkonu sinni sem býr við ofbeldi og ógn.
Glæpasögur Lögreglukonur Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Sænskar bókmenntir Þýðingar úr sænsku