Skoða bók
Lila
3
13:15 klst.
2020
Lila er munaðarlaus. Henni var misþyrmt í bernsku og hún var vanrækt. Hún er að dauða komin þegar utangarðskonan Doll nemur hana á brott. Við tekur líf á flótta, undir dimmum skugga ofbeldis, ógnar og örbirgðar, þótt stundum birti til. Eftir dauða Doll flækist Lila víða, er meðal annars á vændishúsi í stórborginni, sífellt á flótta undan fortíð sinni þar til hún kemur til smábæjarins Gilead. Hið eina sem hún á er flugbeittur hnífurinn hennar Doll, morðvopn. Í nýjum og öruggum aðstæðum sem eiginkona prestsins John Ames, þarf hún að reynslu sína að friðsælu nýju lífi en jafnframt á köflum dómharðri trú og heimsmynd prestsins. Hrífandi skáldsaga, spennandi og átakanleg, sem vekur áleitnar spurningar um siðgæði og trú, hugrekki og von, vanmátt og ósigra, ofbeldi og illsku - en líka um gleði og ást. Lila er sjálfstæður hluti þríleiks ásamt skáldsögunum Gilead og Heima sem einnig hafa komið úr í íslenskri þýðingu Karls Sigurbjörnssonar.