Skoða bók

Íslandsdætur

Nína Björk Jónsdóttir  

Helga Elínborg Jónsdóttir   María Lovísa Guðjónsdóttir  

02:18 klst.  

2020  

Í Íslandsdætrum er sögð saga rúmlega fjörutíu framúrskarandi kvenna sem spanna tímann allt frá upphafi byggðar á Íslandi til dagsins í dag. Konurnar eru jafn ólíkar og þær eru margar. Sumar eru þekktar fyrir hugrekki og staðfestu eða fyrir að hafa upplifað ótrúlegar þrekraunir og tekist á við þær af seiglu og áræðni. Aðrar voru brautryðjendur, landkönnuðir, menntakonur, sjómenn eða þekktar fyrir vísindastörf, íþróttaafrek, ritstörf, tónsmíðar eða aðrar listir. Hér er einnig sögð saga kvenna sem börðust fyrir jafnrétti kynjanna og gáfu kost á sér til forystu til að bæta samfélagið. Yngstu konurnar í bókinni eru rétt að byrja að láta til sín taka. Á síðum Íslandsdætra er fjallað um stórmerkilegar konur sem höfðu áhrif á samtíma sinn og skildu eftir sig merkilega arfleifð. Kvenskörungar sem létu til sín taka, ruddu brautina, voru frumkvöðlar og létu ekki mótlæti, erfiðar aðstæður, fátækt eða hneykslan samborgaranna á sig fá. Þær eru Íslandsdætur.  

Barna- og unglingabækur Brautryðjendur Frumkvöðlar Fyrirmyndir Konur Ungmennabækur Æviþættir Ísland Íslandssaga