Skoða bók
Stórkostlega sumarnámskeiðið
01:17 klst.
2024
Pabbi hefur steingleymt að skrá Pétur á sumarnámskeið en Stefanía bjargar því og stofnar til sérsniðins námskeiðs fyrir vin sinn. Og þar með upphefst fjörugt sumar þar sem við sögu koma andsetin töfraþvottavél, vöffluturn, óútreiknanlegir ullarsokkar og rammskakkur leynikofi. Sögur Tómasar Zoëga og Sólrúnar Ylfu Ingimarsdóttur um þau Pétur og Stefaníu eru óborganlega skemmtilegar og hafa hlotið ýmsar viðurkenningar. Þar á meðal eru tilnefningar til Barna- og unglingabókaverðlauna Norðurlandaráðs og Barnabókaverðlauna Reykjavíkurborgar. Þetta er þriðja sagan um vinina uppátækjasömu, ætluð lesendum á aldrinum 6-10 ára.
Barna- og unglingabækur Barnabókmenntir (skáldverk) Skáldsögur Íslenskar bókmenntir