Skoða bók

Hefnd Diddu Morthens

Sigríður Pétursdóttir  

Súsanna Margrét Gestsdóttir  

Nýjar raddir  

02:55 klst.  

2025  

"Stundum læt ég mér detta í hug að prófa eitthvað nýtt. Ég hef verið í bókaklúbbi, stundað Zumba, gengið á fjöll og farið í sjósund. Ekkert af þessu höfðar sérstaklega til mín en það hefur verið skárra að hafa eitthvað við að vera. Eitthvað til að dreifa huganum." Starfsferill Diddu Morthens er að engu orðinn, börnin löngu farin að heiman og eiginmaðurinn er úrvinda öll kvöld. Hún hangir í tölvunni til að drepa tímann og dag einn býr hún til gervimenni á netinu til að hefna sín á gamalli bekkjarsystur. Atlagan heppnast svo vel að Didda ræðst í flóknari aðgerðir sem krefjast einbeitts brotavilja. Sprenghlægileg saga sem bar sigur úr býtum í Nýjum röddum, handritasamkeppni Forlagsins. Sigríður Pétursdóttir er kvikmyndafræðingur og vann lengst af hjá RÚV við dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. Hefnd Diddu Morthens er fyrsta skáldsaga hennar.  

Skáldsögur Íslenskar bókmenntir