Skoða bók
Bók vikunnar
05:43 klst.
2025
Húni er nýkominn til borgarinnar þegar honum býðst starf á litlu skóverkstæði í Reykjavík meðfram námi í háskólanum. Gamli skósmiðurinn lést fyrir skömmu og Húni fær það hlutverk að afgreiða ósótta skó til viðskiptavina. Húni kemur úr afskekktri sveit, fullur efasemda um nútímann og á því nokkuð erfitt með að fóta sig í bænum. Til að flækja tilfinningalíf hans enn frekar kynnist hann Júlíu sem honum þykir bæði óútreiknanleg og heillandi. Dag einn þegar hann situr á skóverkstæðinu fær hann hugmynd sem gæti bæði unnið hjarta Júlíu en um leið uppfyllt draum hans um að setja mark sitt á menningarlífið í borginni. Snæbjörn Arngrímsson hefur áður vakið athygli fyrir óvenjulegar glæpasögur, en nú hefur hann skrifað annars konar bók: Bók vikunnar. Hér spretta fram sérstæðar persónur í kunnuglegu umhverfi og seiðmögnuð stemmning ljær sögunni leyndardómsfullan blæ.