Skoða bók

Blái pardusinn : hljóðbók

Sigrún Pálsdóttir  

Sunna Björk Þórarinsdóttir  

02:14 klst.  

2025  

Blái pardusinn - hljóðbók er dramatísk gamansaga um hlustun og athygli, sagnfræði og skáldskap. Streymisveita ein hefur gefið út hljóðbókina Bláa pardusinn, örlagasögu sem innblásin er af ævintýralegu ferðalagi íslenskrar konu um Evrópu á tímum seinni heimsstyrjaldar. Hér segir frá þremur hlustendum bókarinnar og baráttu þeirra við að halda þræði í æsispennandi atburðarásinni mitt í daglegu amstri en höfundurinn, sem enginn veit hver er, gerir þeim ekki auðvelt fyrir. Dæmalaus frásögnin fer um víðan völl og illmögulegt er að henda reiður á hvað er skáldað og hvað ekki, líkt og kemur í ljós þegar leiðir hlustendanna þriggja liggja að lokum saman við óvenjulegar og þrúgandi aðstæður.  

Skáldsögur Íslenskar bókmenntir