Slökkt verður á eldra appi safnsins 14. apríl

Áfram verður hægt að hlusta á bækur hér á vefnum.

Smelltu hér til að ná í nýja appið

Skoða bók

Hvernig ég kynntist fiskunum

Pavel, Ota  

Gyrðir Elíasson  

Hjalti Rögnvaldsson  

04:49 klst.  

2011  

Verkið leikur á mörkum skáldsagna- og smásagnagerðar og lýsir með ljúfsárum hætti veröld sem var í sveitahéruðum Tékkóslóvakíu, áður en síðari heimsstyrjöldin skall á og landið var hernumið af Þjóðverjum. Hér segir af ævintýralegum veiðiferðum Poppers sölufulltrúa og Proseks ferjumanns, af vatnakörfum sem fóðraðir eru á maltkorni og dádýrshjörtum sem ruggað er í barnavögnum. En þegar stríðið brýst út, eru faðir og bræður hins unga sögumanns sendir í fangabúðir Þjóðverja. Og þá stendur upp á hann einan að færa björg í bú.  

Skáldsögur Tékkneskar bókmenntir Ævisögulegar bókmenntir