Skoða bók

Eldar kvikna 2

Collins, Suzanne  

Guðni Kolbeinsson  

Helga Elínborg Jónsdóttir  

Hungurleikarnir  

12:14 klst.  

2012  

Eftir að hafa sigrað í Hungurleikunum og skilað bæði sér og Peeta, félaga sínum úr Tólfta umdæmi, heim í heilu lagi ætti Katniss að vera himinlifandi. Hún flytur inn í Sigurþorp, þarf aldrei framar að óttast hungur og getur aftur farið á veiðar með æskuvininum Gale. En ekkert er eins og það á að vera: Gale er gerbreyttur, Peeta snýr við henni baki og vaxandi ólga í Panem veldur áhyggjum. Í sigurvegaraferðinni verða Katniss og Peeta að kæfa allar uppreisnartilraunir í fæðingu - hvort sem þau kæra sig um það eða ekki - annars er miklu meira í húfi en nýfengið ríkidæmi og þægindi.  

Bandarískar bókmenntir Fantasíur Unglingar Ungmenni Vísindaskáldsögur