Skoða bók

Veislan í norðri

Jón Hjartarson  

Kolbeinn Óttarsson Proppé  

03:54 klst.  

2011  

Bókin lýsir þeim anda sem var ríkjandi í litlu þorpi þegar síldinni var bókstaflega mokað á land. Sögusviðið er Raufarhöfn á árunum 1960 til 1967. Sagan er sögð af námsmanninum Jóni Hjartarsyni sem starfaði á sumrin sem verkamaður í síldarbræðslunni og vann sig upp frá því að vera í einu af lægstu þrepum mannvirðingastigans í eitt þeirra efri. Mælikvarðinn á mannvirðingar myndgerðist í mötuneytinu þar sem þeir hæstskrifuðu sátu á innstu borðunum. Jón var, áður en yfir lauk, kominn inn á gafl. Sagan er í senn fróðleg og skemmtileg. Lítið er um þurrar upptalningar en þess í stað brugðið upp lýsingum á mönnum og umhverfi. Þá örlar fyrir spennu á köflum. Þar má nefna lýsingu á því þegar verkamaður í þró var í beinum lífsháska á færibandi sem var á góðri leið með að flytja hann í brennara verksmiðjunnar með hrikalegum afleiðingum. Lýst er kapphlaupi mannsins við dauðann þar sem hann í örvæntingu reynir að hafa undan hraða færibandsins.  

20. öldin Jón Hjartarson, 1944 Norðurland Raufarhöfn Síld Síldarsöltun Síldarárin Síldarárin Síldveiðar Söguleg umfjöllun Ævisögur og endurminningar