Slökkt verður á eldra appi safnsins 14. apríl

Áfram verður hægt að hlusta á bækur hér á vefnum.

Smelltu hér til að ná í nýja appið

Skoða bók

Kleppur í 100 ár

Óttar Guðmundsson  

Kolbeinn Óttarsson Proppé  

08:22 klst.  

2007  

Bókin er rituð í tilefni af aldarafmæli Kleppsspítala en fyrsti sjúklingurinn lagðist þar inn fyrir réttum 100 árum og æ síðan hefur Kleppur verið óaðskiljanlegur hluti íslensks veruleika. Í bókinni er saga Klepps rakin og um leið sögð saga fólksins sem þar starfaði og sjúklinganna sem þar voru vistaðir, svo og saga geðlækninga á Íslandi og þróunar þeirra. Húsið inni við Sundin var vettvangur mikilla átaka við erfiða sjúkdóma og dapurlegra örlaga, þótt stundum rættist úr, og þar féllu stundum stórar bombur. Saga Klepps getur aldrei orðið gleðisaga mikilla sigra og landvinninga, segir höfundurinn í formála bókarinnar og bendir á að Kleppur hafi alla tíð átt í höggi við lævísa fordóma. Víst er að spítalinn varð uppspretta fjölmargra sagna og brandara og ýmislegt sagt um vistmenn þar og lækningaaðferðir. Sagan er sögð í laustengdum, stuttum köflum og mikið vitnað í frumheimildir.  

Geðlækningar Geðsjúkdómar Geðsjúkrahús Kleppsspítali Kleppur Saga Sjúklingar