Skoða bók

Jólin koma

Jóhannes úr Kötlum  

Sigurður Skúlason  

00:15 klst.  

1932  

Jólin koma eftir Jóhannes úr Kötlum kom fyrst út haustið 1932 og varð fljótt ómissandi þáttur í undirbúningi jólanna. Fáar íslenskar bækur hafa verið prentaðar jafnoft í tímans rás eða öðlast viðlíka vinsældir. Með kvæðum sínum Jólin koma, Jólasveinarnir, Grýlukvæði, Jólakötturinn og Jólabarnið hefur Jóhannes úr Kötlum kynnt þjóðtrú og forna jólasiði fyrir hverri kynslóðinni á fætur annarri - en einnig miðlað þeim sanna jólaanda að á myrkasta tíma ársins sé við hæfi að leiða hugann að þeim sem minnst mega sín.  

Barnaljóð Grýla Jól Jólaefni Jólasveinar Ljóð Íslenskar bókmenntir