Skoða bók
Kallar hann mig kallar hann þig
08:30 klst.
2014
Í bók sinni Kallar hann mig, kallar hann þig fjallar sagnfræðingurinn Sigrún Elíasdóttir um líf og störf afa síns, alþýðumannsins/torfhleðslumannsins Jóhannesar Arasonar frá Seljalandi í Gufudalssveit. Söguhetja bókarinnar fæddist í torfbæ árið 1913 og lést á reykvískri sjúkrastofnun 96 árum síðar, árið 2009. Æviskeið Jóhannesar spannar því einhverja mestu umbrotatíma Íslandssögunnar. Sigrún byggir bók sína jöfnum höndum á eigin minningum og sviðsetningum úr æsku afa síns. Úr verður heillandi frásögn sem brúar bilið á milli gamla og nýja tímans. Kallar hann mig, kallar hann þig er dýrmætur aldarfarsspegill nú á tímum aukinnar sjálfsskoðunar okkar Íslendinga.