Skoða bók
Ballynahinch
04:17 klst.
2006
Leit að einni og óskiptri sjálfsmynd þrátt fyrir margþættan uppruna er efni þessara frásöguþátta skáldkonunnar Normu E. Samúelsdóttur sem er af írskum og skoskum uppruna, auk þess sem móðurfólk hennar er upprunnið í Hnífsdal við Ísafjarðardjúp. Á fjórum diskum greinir Norma frá ætterni sínu og skyldmennanna að vestan, svo og ferðum meðal föðurfólksins á Írlandi og í Skotland. Ljóðmæli Normu hafa skorið sig úr vegna sérkenna sinna. Efni þessara diska opnar leið fyrir nýjan skilning á ljóðabókum hennar, auk þess að vera sjálfstætt framlag úr höfundasmiðju skáldkonunnar sem sjálf les hér æviminningar sínar.