Skoða bók
Falskur fugl
05:20 klst.
1997
Í Grafarvogi búa um 13 þúsund manns, þar af er helmingur yngri en átján ára. Þetta er saga eins þeirra. Arnaldur Gunnlaugsson er 16 ára og býr hjá velstæðum foreldrum sínum í Grafarvogi. Hann er myndarlegur, gáfaður og fer ferða sinna í leigubílum - auk þess er hann truflaður á geði. Falskur fugl er nöpur og hrottaleg lýsing á heimi sem allir þekkja en fæstir þora að horfast í augu við. Stjórnlaust lendum við í árekstri við óskabarn þjóðarinnar sem um leið er hennar versta martröð.
Glæpasögur Grafarvogur Kvikmyndaðar bækur Skáldsögur Íslenskar bókmenntir