Skoða bók
Þroskahömlun barna
Ásgerður Ólafsdóttir Bryndís Halldórsdóttir Evald Sæmundsen Hafdís Guðjónsdóttir Helga Kristinsdóttir Hrönn Björnsdóttir Ingibjörg Auðunsdóttir Ingibjörg Georgsdóttir Ingólfur Einarsson Jóna Guðbjörg Ingólfsdóttir Katrín Davíðsdóttir Laufey Ýr Sigurðardóttir Margrét Valdimarsdóttir María Játvarðardóttir Ólafur Thorarensen Ólöf Guðný Geirsdóttir Snæfríður Þóra Egilson Solveig Sigurðardóttir Stefán J. Hreiðarsson Tryggvi Sigurðsson
Ásdís Thoroddsen Margrét Kaaber Sólveig Hauksdóttir
1
09:09 klst.
2008
Þroskahömlun er fötlun sem hefur verið þekkt um aldir og er algengust allra fatlana. Þekking á orsökum og eðli þroskahömlunar er stöðugt að aukast og jafnframt þekking á þeim leiðum til íhlutunar sem dregið geta úr áhrifum fötlunarinnar á líf barna og fullorðinna með þroskahömlun. Fyrirbyggjandi aðgerðir út frá hugmyndafræði snemmtækrar íhlutunar hafa einnig þróast ört frá miðbiki síðustu aldar og hafa það meðal annars að markmiði að draga úr líkum á því að barn verði þroskaheft. Viðhorf samfélagsins til þroskahömlunar og annarrra fatlana hefur breyst ört á undanförnum áratugum. Það er liðin tíð að litið sé á fötlun sem vandamál einstaklingsins sjálfs heldur er nú litið svo á að fötlun sé afleiðing flókins samspils á milli hins fatlaða og þess félags- og menningarlega umhverfis sem hann lifir í. Fötlun er því viðfangsefni samfélagsins alls þar sem markmiðið hlýtur að vera að búa þeim fötluðu sem best lífsskilyrði. Í bókinni er fjallað um þroskahömlun barna, orsakir, eðli og leiðir til íhlutunar. Sjónum er beint að eðlilegum þroskaferli barna, helstu orsökum þroskahömlunar, alþjóðlegum skilgreiningum og greiningu á þroskahömlum og helstu erfiðleikum sem þessi fötlun getur haft í för með sér fyrir hinn fatlaða og fjölskyldu hans. Íhlutun er gerð ítarleg skil, allt frá snemmtækri íhlutun á fyrstu árum ævinnar til skólagöngu í grunn- og framhaldsskólum. Einnig er fjallað um stuðning við fjölskyldur barna með þroskahömlun.
Börn Fötlun Fötlunarfræði Hegðunarvandamál Menntun Snemmtæk íhlutun Þroskaheftir