Skoða bók
Félagsfræði 2
3
2
20:55 klst.
2016
Félagsfræði 2 - kenningar og samfélag er kennslubók ætluð fyrir áfangann FÉL 203 og er í bókinni fjallað um allt það efni sem námskrá menntamálaráðuneytisins gerir ráð fyrir að fjallað sé um í þessum áfanga. Bókin kom fyrst út árið 2000 og hefur nú verið endurskoðuð rækilega, ýmsu nýju efni bætt við og eldra fellt burt og upplýsingar uppfærðar. Bókin skiptist í sjö kafla: · Félagsfræði, sjónarhorn og aðferðir · Félagsfræðilegar kenningar · Samskipti · Frávik og afbrot · Félagsleg lagskipting · Fjölmiðlar · Kynhlutverk Öll umfjöllun er mjög rækileg og einstök atriði og helstu kenningasmiðir eru tekin fyrir í sérstökum rammagreinum til aðgreiningar frá megintextanum. Íslenskar rannsóknir, fræðimenn og dæmi skipa veglegan sess í bókinni. Fjölmargar myndir, kort og töflur skýra efnið enn frekar. Í lok hvers kafla er samantekt efnisins, listi yfir orð og hugtök og verkefni. Höfundur bókarinnar, Garðar Gíslason félagsfræðingur, er kennari við Menntaskólann í Kópavogi.