Slökkt verður á eldra appi safnsins 14. apríl

Áfram verður hægt að hlusta á bækur hér á vefnum.

Smelltu hér til að ná í nýja appið

Skoða bók

Hjónin við hliðina

Lapena, Shari  

Ingunn Snædal  

Gunnar Gunnsteinsson  

09:15 klst.  

2016  

Lífið leikur við Anne og Marco; samband þeirra er kærleiksríkt, þau eru vel stæð, njóta velgengni í starfi og eiga nýfædda, heilbrigða dóttur. En kvöld eitt fara þau í matarboð til hjónanna við hliðina, sem líka eru vel stæð velgengnishjón, og á meðan er glæpur framinn. Þegar rannsókn hans hefst fellur samstundis grunur á þau öll og málið vindur upp á sig. Í ljós kemur allir hafa eitthvað að fela, enginn og ekkert er sem sýnist og sannleikurinn er flóknari en nokkurn gat grunað. Hjónin við hliðina er sálfræðileg glæpasaga í fremstu röð. Shari Lapena heldur lesandanum í heljargreipum frá fyrstu síðu með snilldarlegri fléttu sem kemur sífellt á óvart, allt til loka. Þetta er taugatrekkjandi fjölskyldusaga um svik, ástríður, tvöfeldni og óheilindi.  

Glæpasögur Kanadískar bókmenntir Skáldsögur Spennusögur Sálfræðitryllir Þýðingar úr ensku