Skoða bók

Vetrarhörkur

Hildur Knútsdóttir  

Hildur Knútsdóttir  

Vetrartvíleikurinn  

06:40 klst.  

2016  

Án þess að átta sig á því hafði hún verið farin að leggja drög að nýju lífi. Og þrátt fyrir óttann um Braga hafði hún upplifað sig örugga. En það öryggi var nú fokið út í hafsauga. Þær voru komnar. Þær voru hér. Enginn veit hversu margir lifðu af geimveruárásina sem gerð var á landið. Bergljót og pabbi hennar eru enn í Vestmannaeyjum og nú hefur heyrst lífsmark frá Braga bróður hennar ofan af landi. Spurningarnar eru óteljandi: Hvað vilja geimverurnar? Er hægt að sigrast á þeim? Verður lífið einhvern tíma venjulegt á ný? Vetrarhörkur er seinni hluti sögunnar sem Hildur Knútsdóttir hóf í Vetrarfríi, spennandi bók sem naut mikilla vinsælda, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Barnabókaverðlauna Reykjavíkur, og hlaut Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna.  

Barna- og unglingaefni Fantasíur (skáldsögur) Geimverur Hrollvekjur (sögur) Lífsreynsla Skáldsögur Ungmennabækur Ungmenni Íslensku bókmenntaverðlaunin