Skoða bók

Tvísaga

Ásdís Halla Bragadóttir  

Sara Friðgeirsdóttir  

10:18 klst.  

2016  

Fjölskyldusaga Ásdísar Höllu Bragadóttur er í meira lagi dramtísk. Hér segir frá ungri, einstæðri móður í Höfðaborginni í baráttu við barnaverndarnefnd, bræðrum sem sendir eru í fóstur á Silungapoll og bíða þess aldrei bætur. Við sögu koma líka unglingsstúlka sem smyglar læknadópi inn á Litla Hraun, menn sem hún heldur að séu feður hennar, amma og stjúpafi sem búa í torfkofa uppi á Hellisheiði, berfætt telpa sem stendur ein undir vegg í snjó og myrkri og kona sem verður tvísaga. Vel skrifuð, opinská og einlæg frásögn þar sem Ásdís Halla Bragadóttir segir einstaka sögu móður sinnar – og þeirra mæðgna. Saga þeirra er full af gleði en líka djúpum harmi, vonum og vonbrigðum og sannleika sem aldrei er einhlítur. Tvísaga er bók sem kemur á óvart og lætur engan ósnortinn.  

Barnavernd Endurminningar Faðerni Fjölskyldusögur Höfðaborgin Litla-Hraun Mæðgur Sigríður Stefanía Sívertsdóttir Hjelm 1939 Silungapollur Ásdís Halla Bragadóttir 1968 Ævisögur