Skoða bók

Stúlkan sem enginn saknaði

Jónína Leósdóttir  

Helga Elínborg Jónsdóttir  

Eddumál  

10:28 klst.  

2016  

Ískaldan febrúarmorgun er stúlka stungin með hnífi þar sem hún situr á bekk við Ægisíðuna. Örskömmu síðar á eftirlaunaþeginn Edda leið fram hjá. Hún lætur sér ekki nægja að kalla í lögregluna heldur ákveður að rannsaka málið sjálf. Um sama leyti leggja hjón og uppkomin dóttir þeirra af stað til Íslands, föðurlands húsmóðurinnar. Þar hyggjast feðginin sækja ráðstefnu en dvölin verður martraðarkennd fyrir konuna sem trúir Eddu fyrir viðkvæmu fjölskylduleyndarmáli. Fyrsta bók Jónínu Leósdóttur um Eddumál, Konan í blokkinni, hlaut gríðargóðar viðtökur meðal lesenda og gagnrýnenda. Hér heldur Edda áfram að leysa ráðgátur og kærir sig kollótta þótt fjölskyldu hennar finnist hún hegða sér glæfralega.  

Norrænar spennusögur Sakamálasögur Skáldsögur Spennusögur Íslenskar bókmenntir