Skoða bók

Barnagæla

Slimani, Leïla  

Friðrik Rafnsson  

Elín Gunnarsdóttir  

05:41 klst.  

2017  

Myriam og Paul eru bæði í krefjandi störfum og ráða til sín fullorðna konu til að gæta bús og barna. Louise reynist vera hin fullkomna barnfóstra og verður brátt ómissandi hluti af fjölskyldunni. Smám saman kemur þó í ljós að hún er ekki öll þar sem hún er séð... Barnagæla er haganlega fléttuð saga; ógnin lúrir undir niðri og lesandanum er haldið föngnum allt frá upphafi. Dregin er upp mynd af dæmigerðri nútímafjölskyldu sem í dagsins önn á sér einskis ills von, en jafnframt skyggnst inn í sjúkan hugarheim manneskju sem svífst einskis þegar henni finnst að sér þrengt.  

Franskar bókmenntir Glæpasögur Skáldsögur Spennusögur Þýðingar úr frönsku