Skoða bók

Bieber og Botnrassa

Haraldur F. Gíslason  

Hjálmar Hjálmarsson  

Bieber og Botnrassa  

05:47 klst.  

2017  

Andrea, Elsa Lóa, Tandri og Stjúri komast heldur betur í feitt þegar þau sjá auglýsta hljómsveitakeppni í Hörpu. Sigurvegarinn á möguleika á að fylgja sjálfum Justin Bieber á alheimstúr. Vandamálið er að krakkarnir í hljómsveitinni Botnrössu eru bara 12 og 13 ára - og svo er mamma Andreu í hrikalegu veseni. Þau fjögur eru staðráðin í að semja algjöran hittara fyrir keppnina - og bjarga mömmu Andreu. Bieber og Botnrassa er stórskemmtileg og hörkuspennandi saga um fríska krakka sem láta ekki smáatriðin vefjast fyrir sér! Haraldur F. Gíslason stekkur hér fram sem barna- og unglingabókahöfundur, en hann er þekktari sem trommuleikari í Botnleðju og gítarleikari og söngvari í hljómsveitinni Pollapönk.  

Hljómsveitir Tónlist Unglingabækur Unglingar Íslenskar bókmenntir