Skoða bók
Söngurinn og sveitin
02:54 klst.
2017
Söngurinn og sveitin eru æviminningar Guðrúnar Tómasdóttur söngkonu. Hér rekur hún lífshlaup sitt, allt frá bernskuárum sínum á Hólum í Hjaltadal þar sem hún missti föður sinn kornung. Guðrún aflaði sér menntunar af miklum dugnaði, hálfþrítug hélt hún til söngnáms í New York og kynntist þar lífsförunauti sínum, Frank Ponzi. Þau settust að á Íslandi og stofnuðu einstakt heimili í Mosfellsdal. Guðrún starfaði um árabil sem söngkona og söngkennari og segir hér frá kynnum sínum af fjölmörgu tónlistarfólki á þeim áratugum þegar íslenskt tónlistarlíf tók stórstígum framförum.
Endurminningar Frásagnir Guðrún Tómasdóttir 1925 Mosfellsbær Söngkonur Tónlistarmenn Ævisögur